Brasilíski knattspyrnumaðurinn Daniel Alves losnar væntanlega ekki úr varðhaldi á Spáni á næstunni, þar sem dómstólar þar í landi höfnuðu beiðni lögfræðinga hans um að leysa hann úr haldi gegn tryggingu í dag.
Beiðni lögfræðinga Brasilíumannsins var hafnað, á þeim forsendum að Alves væri líklegur til að flýja Spán, yrði hann látinn laus úr haldi.
Alves hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar, vegna gruns um að hafa brotið kynferðislega á konu á næturklúbbi í Barcelona í desember. Eftir að hafa hlýtt á framburð Alves, meints fórnarlambs og eins vitnis fyrirskipaði dómari að hann skyldi færður í fangelsi í borginni án lausnargjalds. Alves hefur ávallt neitað sök í málinu.
Lögfræðingar Alves lögðu fram beiðni til dómara um að endurskoða ákvörðunina og gefa Brasilíumanninum færi á að greiða lausnargjald, með því skilyrði að Alves myndi láta vegabréf sitt af hendi og fara ekki úr landi, auk þess sem hann myndi halda sér fjarri meintu fórnarlambi og bæri ökklaband.
Dómarinn hafnaði þeirri kröfu í dag og sagði fjárhagslega stöðu Alves of sterka til að hægt væri að treysta því að hann kæmist ekki úr landi. Yfirvöld á Spáni geta ekki farið fram á að framsal brasilískra borgara frá heimalandinu og yrði Alves því mögulega óhultur í heimalandinu.
Verður hann því áfram í varðhaldi þar til réttarhöld í málinu fara fram, en ekki hefur verið gefin út dagsetning fyrir þau, þar sem málið er enn í rannsókn.