Olivier Giroud, sóknarmaður AC Milan, kveðst aldrei hafa verið jafn spenntur og nú þegar undanúrslitaeinvígi gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Inter Mílanó bíður í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
Giroud verður brátt 37 ára gamall og vill gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að vinna Meistaradeildina í annað sinn á ferli sínum, en það gerði hann með Chelsea árið 2021.
„Ég er nærri því 37 ára gamall en ég bý enn yfir sömu hvatningu og þegar ég var ungur drengur. Ég hef aldrei verið jafn spenntur. Þetta er frábært tækifæri til þess að vinna Meistaradeildina.
Nágrannaslagur er alltaf sérstök viðureign að taka þátt í. Ég er mjög stoltur af þessu Milan-liði og við vonumst til þess að gera eitthvað frábært á morgun [í kvöld],“ sagði Giroud á blaðamannafundi í gær.
Fyrri leikur liðanna, sem deila heimavelli, fer fram klukkan 19 í kvöld. AC Milan er skráð heimalið í leik kvöldsins.