Inter Mílanó er í góðum málum í einvígi sínu gegn AC Milan í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 2:0-sigur í fyrri leiknum í kvöld.
Þar sem bæði lið leika heimaleiki sína á San Siro, fara báðir leikir fram á sama velli. Leikurinn í dag var skráður heimaleikur AC Milan.
Það byrjaði ekki vel fyrir „heimamenn“ því Edin Dzeko kom Inter yfir á áttundu mínútu með glæsilegri afgreiðslu í teignum, eftir sendingu frá Hakan Calhanoglu. Calhanoglu lék áður með AC Milan.
Aðeins þremur mínútum síðar var Henrikh Mkhitaryan búinn að tvöfalda forskotið, eftir undirbúning hjá Federico Dimarco.
Þrátt fyrir að AC Milan hafi verið betra liðið í seinni hálfleik urðu mörkin ekki fleiri og Inter er í góðum málum fyrir seinni leikinn næstkomandi þriðjudag.