Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madríd, var verulega ósáttur við að jöfnunarmark Manchester City í leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu hafi fengið að standa.
Ancelotti sagði boltann hafa farið út af áður en Kevin De Bruyne jafnaði metin í 1:1 með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig. Áður hafði Vinícius Júnior komið Madrídingum yfir, einnig með frábæru skoti fyrir utan teig.
„Boltinn fór út af vellinum. Það er ekki ég sem fullyrði það, tæknin segir það.
Þetta kemur mér á óvart. Þetta eru smáatriði en dómarinn tók ekki sérstaklega vel eftir,“ sagði ítalski stjórinn á blaðamannafundi eftir leik.
Sagði hann Real Madríd einnig hafa átt að fá hornspyrnu skömmu áður en boltinn hafi farið út af en hún hafi sömuleiðis ekki verið dæmd.
Ancelotti fékk gult spjald fyrir mótmæli eftir mark De Bruyne.
The ball appeared to go out of play in the buildup before Kevin De Bruyne's equalizer against Real Madrid.
— ESPN FC (@ESPNFC) May 9, 2023
VAR did not review the goal. pic.twitter.com/gjPBmNYnr8