Vålerenga hafði betur gegn Røa í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, 2:1.
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn í miðri vörninni hjá Vålerenga að vanda, en hún hefur verið í lykilhlutverki hjá liðinu frá árinu 2020.
Vålerenga er með 23 stig eftir níu leiki og með sex stiga forskot á Rosenborg á toppnum. Selma Sól Magnúsdóttir leikur með Rosenborg, sem á leik til góða.