Mexíkósk goðsögn fallin frá

Antonio Carbajal fær á sig mark í leik Mexíkó gegn …
Antonio Carbajal fær á sig mark í leik Mexíkó gegn gestgjöfum Svíþjóðar á HM 1958. Ljósmynd/Scanpix

Mexíkóska goðsögnin Antonio Carbajal, sem varð fyrsti knattspyrnumaðurinn í sögunni til þess að taka þátt á fimm heimsmeistaramótum, er látinn, 93 ára að aldri.

Carbajal lék sem markvörður og tók þátt með mexíkóska landsliðinu á HM 1950 í Brasilíu, 1954 í Sviss, 1958 í Svíþjóð, 1962 í Síle og 1966 á Englandi.

Alls lék hann 48 landsleiki fyrir Mexíkó og komu 11 þeirra á heimsmeistaramótum.

Carbajal átti metið yfir þátttöku á flestum heimsmeistaramótum einn um 32 ára skeið þegar Lothar Matthäus jafnaði það með því að leika fyrir Þýskaland á HM 1998 í Frakklandi.

Hann lék stærstan hluta ferils sín fyrir León þar sem hann spilaði 364 leiki á 16 árum. Ferill Carbajals spannaði 18 ár, frá 1948 til 1966, en hann lék fyrstu tvö ár ferilsins fyrir Club Espana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert