Sergio Busquets, fyrirliði knattspyrnuliðs Barcelona, mun yfirgefa uppeldisfélagið þegar samningur hans rennur út í sumar.
Orðrómar um brottför hins 34 ára gamla varnartengiliðs hafa verið háværir allt þetta tímabil og ákvað Busquets að taka af allan vafa með yfirlýsingu sem hann birti á Instagram-aðgangi sínum í morgun.
„Það er tímabært að tilkynna að þetta verður síðasta tímabil mitt með Barca. Þetta hefur verið ógleymanlegt ferðalag.
Þegar ég var barn fór ég á leiki eða horfði á þá í sjónvarpi. Mig dreymdi ávallt um að spila í þessari treyju og á þessum leikvangi og veruleikinn hefur farið langt fram úr mínum björtustu draumum,“ sagði Busquets meðal annars.
Ferill hans með Börsungum, þar sem hann hefur leikið alla tíð, hefur verið magnaður. Busquets hefur unnið Meistaradeild Evrópu þrisvar, spænsku deildina átta sinnum og er nú hársbreidd frá níunda meistaratitlinum, spænska konungsbikarinn sjö sinnum og heimsmeistarakeppni félagsliða þrisvar.
Með spænska landsliðinu varð hann heimsmeistari árið 2010 og Evrópumeistari 2012.
Busquets hefur verið orðaður við för til Bandaríkjanna, þar sem Inter Miami, félag í eigu Davids Beckhams, er sagt afar áhugasamt.