Á undan áætlun eftir krossbandsslit

Beth Mead fagnar marki í leik með enska landsliðinu.
Beth Mead fagnar marki í leik með enska landsliðinu. AFP/Adrian Dennis

Beth Mead, lykilmaður kvennaliðs Arsenal og enska landsliðsins í knattspyrnu, er á góðum batavegi eftir að hafa slitið krossband í hné í lok síðasta árs og er byrjuð að æfa á ný með félagsliði sínu.

„Ég er mætt aftur út á völl að sparka í bolta og líður vel. Ég er á undan áætlun þannig að það er það eina sem ég hef stjórn á sem stendur,“ sagði Mead í samtali við Sky Sports.

Hún var valin besti leikmaðurinn og var sömuleiðis markahæst á EM 2022 þegar England varð Evrópumeistari og bindur vonir við að vera klár í slaginn fyrir HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, sem hefst í júlí næstkomandi.

„Ég myndi ekki segja að ég sé viss um að komast með á HM því það er ekki í mínum höndum en ég vinn hörðum höndum að því að komast eins nálægt því og mögulegt er,“ bætti Mead við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert