Emil og félagar áfram í umspili

Emil Hallfreðsson lék í klukkutíma.
Emil Hallfreðsson lék í klukkutíma. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Virtus Verona hafði í kvöld betur gegn Novara á heimavelli, 3:0, í 1. umferð umspilsins í C-deild Ítalíu í fótbolta.

Með sigrinum tryggði Verona sér sæti í 16-liða úrslitum í baráttunni um sæti í B-deildinni.

Emil Hallfreðsson, sem er orðinn 38 ára, lék fyrsta klukkutímann hjá Verona-liðinu. Hann er á sínu öðru tímabili með Virtus Verona, en hann lék áður með Padova, einnig í C-deildinni.

Á sunnudaginn sækir Virtus Verona einmitt heim lið Padova í annarri umferð úrslitakeppninnar. Fyrirkomulagið er þannig að liðið sem var ofar í deildinni í vetur fær heimaleikinn og nægir jafntefli í 90 mínútna leik til að fara áfram. Virtus Verona þarf því útisigur á sunnudag til að komast lengra í úrslitakeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert