Fyrrum leikmaður Liverpool kynnir Eurovision-stigin

Ragnar Klavan skorar sigurmark fyrir Liverpool gegn Burnley í ensku …
Ragnar Klavan skorar sigurmark fyrir Liverpool gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í janúar árið 2018. AFP

Ragnari Klavan, fyrrverandi varnarmanni enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur verið falið það verkefni að kynna stig Eistlands þegar Eurovision söngvakeppnin fer fram í Liverpool-borg á laugardagskvöld.

Eistinn Klavan lék með Liverpool á árunum 2016 til 2018, stóð sig með prýði og varð að nokkurs konar költhetju hjá stuðningsmönnum félagsins.

Eftir að knattspyrnuferlinum lauk hefur Klavan verið nokkuð áberandi í heimalandinu og tók til að mynda þátt í dans í raunveruleikaþættinum Tantsud Tahtedega, sem er eistneska útgáfan af breska raunveruleikaþættinum Strictly Come Dancing.

Á vef eistneska ríkisútvarpsins er greint frá því að Klavan muni tilkynna hvernig eistneska þjóðin kýs í Eurovision á laugardag, þar sem kemur í ljós hvaða atriði fá 12 stig, 10 stig og þar fram eftir götunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert