Glæsileg tilþrif Hlínar (myndskeið)

Hlín Eiríksdóttir bauð upp á glæsileg tilþrif.
Hlín Eiríksdóttir bauð upp á glæsileg tilþrif. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hlín Eiríksdóttir lagði upp tvö mörk fyrir Kristianstad er liðið vann 4:1-heimasigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta á mánudagskvöld.

Fyrra markið lagði hún upp fyrir Alice Nilsson, með glæsilegri sendingu aftur fyrir sig. Það seinna lagði hún upp fyrir Amöndu Andradóttur, liðsfélaga sinn hjá Kristianstad og íslenska landsliðinu.

Stoðsendinguna glæsilegu á Alice Nilsson má sjá með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert