Hádramatík í Tórínó – Mourinho í góðum málum

Federico Gatti fagnar jöfnunarmarkinu.
Federico Gatti fagnar jöfnunarmarkinu. AFP/Marco Bertorello

Juventus og Sevilla skildu jöfn, 1:1, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildar karla í fótbolta í Tórínó í kvöld.

Sevilla virtist ætla að gera afar góða ferð til Ítalíu, því Youssef En-Nesyri kom liðinu yfir á 26. mínútu. Var staðan 1:0, allt fram að sjöundu mínútu uppbótartímans, er Federico Gatti jafnaði og þar við sat.

Lærisveinar José Mourinho hjá Roma höfðu betur gegn Leverkusen, 1:0, á heimavelli. Edouardo Bove skoraði sigurmarkið á 62. mínútu.

Seinni leikir einvíganna fara fram eftir viku.  

Rómverjar fagna sigurmarkinu.
Rómverjar fagna sigurmarkinu. AFP/Alberto Pizzoli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert