Bosníski knattspyrnumaðurinn Edin Dzeko, sóknarmaður Inter Mílanó, segir einvígi liðsins við nágrannana í AC Milan í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu síður en svo lokið þrátt fyrir sterkan 2:0-sigur liðsins í fyrri leik liðanna í gærkvöldi.
Dzeko skoraði fyrra mark liðsins eftir aðeins átta mínútna leik áður en Henrikh Mkhitaryan innsiglaði sigurinn þremur mínútum síðar.
„Tilfinningin er afskaplega góð, sérstaklega þar sem um nágrannaslag er að ræða. Á pappír lékum við á útivelli, þetta eru frábær úrslit fyrir okkur,“ sagði Dzeko í samtali við BT Sport eftir leik.
Mílanó-liðin deila heimavelli, San Siro, einnig þekktur sem Giuseppe Meazza, og þrátt fyrir góðan sigur í fyrri leiknum, þar sem Inter var skráð sem útilið, sagði framherjinn reyndi að leikmenn liðsins myndu ekki fara fram úr sér.
„Ég held að við munum ekki láta þetta stíga okkur til höfuðs því við erum með reynslumikið lið. Við vitum hverju við áorkuðum í dag [í gær].
Við náðum í frábær úrslit en þetta er langt frá því að vera búið því einungis frábær lið komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar og því þurfum við að vera varkárir og einbeittir eins og í dag.“