Leikmaður Barcelona ósáttur: Þetta eru lygar

Rapninha er ekki sáttur.
Rapninha er ekki sáttur. AFP/Josep Lago

Brasilíumaðurinn Raphinha er ekki sáttur við fréttaflutning enska miðilsins Daily Mail, en hann fjallaði um möguleg félagaskipti leikmannsins frá Barcelona til Chelsea eða Newcastle.

Raphinha kom til Barcelona frá Leeds fyrir yfirstandandi tímabil og hefur skorað sjö mörk og lagt upp sex til viðbótar. Hann hefur hins vegar verið orðaður við brottför frá félaginu.

Leikmaðurinn tjáði sig á Instagram og segir Daily Mail ekki segja rétt frá. „Lygar, aftur, þetta er lygi. Hver sem sagði þetta er lygari og ófaglegur,“ skrifaði sá brasilíski.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert