Aron deildabikarmeistari í Katar

Aron Einar í leiknum í kvöld.
Aron Einar í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Al-Arabi

Al-Arabi varð í kvöld deildabikarmeistari Katar í fótbolta eftir 3:0-sigur á Al-Sadd í úrslitaleik.

Leikið var á hinum glæsilega Ahmed bin Ali-velli, þar sem sjö leikir á HM voru leiknir í lok síðasta árs.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi og nældi sér í gult spjald á 57. mínútu. Hann hefur nú unnið tvo titla með Al-Arabi síðan hann kom til félagsins árið 2019, en liðið varð bikarmeistari á síðasta ári.  

Tímabilið hefur verið gott hjá Al-Arabi, því liðið endaði í öðru sæti katörsku úrvalsdeildarinnar með 49 stig, aðeins einu stigi á eftir Al-Duhail, og átti möguleika á meistaratitlinum til síðasta leiks. Árangurinn tryggði liðinu sæti í  Meistaradeild Asíu á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert