Knattspyrnusamband Úrúgvæs og Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa hafa loks komist að samkomulagi um að Bielsa verði landsliðsþjálfari karlaliðs þjóðarinnar.
Viðræður hófust fyrir um mánuði síðan og tók það forráðamenn knattspyrnusambandsins drjúgan tíma að komast að lokasamkomulagi við Bielsa.
Samningur Bielsa við Úrúgvæ gildir fram yfir heimsmeistaramótið 2026. Bielsa stýrði síðast Leeds, kom liðinu upp úr ensku B-deildinni og náði góðum árangri á sínum fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Erfitt annað tímabil varð hins vegar banabiti Argentínumannsins hjá enska félaginu.
Fyrstu leikir Úrúgvæja undir stjórn Bielsa eru vináttuleikir gegn Níkaragva og Kúbu í næsta mánuði. Úrúgvæjar ollu vonbrigðum á HM í Katar og féllu úr leik í riðlakeppninni.
Bielsa hefur áður verið landsliðsþjálfari í Suður-Ameríku, því hann stýrði argentínska landsliðinu frá 1998 til 2004 og Síle frá 2007 til 2011.