Meistarar síðustu þriggja ára hagræddu úrslitum

Leikmenn Shakhtyor Soligorsk fagna meistaratitlinum á síðustu leiktíð.
Leikmenn Shakhtyor Soligorsk fagna meistaratitlinum á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Shakhtyor Soligorsk

Shakhtyor Soligorsk, meistaralið síðustu þriggja ára í hvítrússneska fótboltanum, var í dag fundið sekt um hagræðingu úrslita.

Fyrir vikið hefur félagið verið svipt meistaratitlinum sem það vann á síðustu leiktíð og 30 stig tekin af liðinu á yfirstandandi tímabili og 20 stig á næstu leiktíð.

Félaginu er gert að sök að hafa greitt öðrum félögum til að hagræða úrslitum. Energetik-BGU Minsk, sem varð í öðru sæti á síðustu leiktíð, og Belshina Bobruisk hafa einnig fengið stigarefsingu fyrir sinn þátt í málinu. 

Minsk missir 20 stig og Belshina Bobruisk 10 stig. Bate Borisov, sem Willum Þór Willumsson lék áður með, fær sæti Shakhtyor Soligorsk í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert