Skoraði í þriðja leiknum í röð

Rúnar Már Sigurjónsson er að gera góða hluti í Rúmeníu.
Rúnar Már Sigurjónsson er að gera góða hluti í Rúmeníu. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Voluntari hafði betur gegn Botosani á heimavelli í efstu deild rúmenska fótboltans í dag, 2:0.  

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði fyrra mark Voluntari á 23. mínútu, en hann hefur nú skorað í þremur leikjum í röð og fjögur mörk alls á tímabilinu. Hann fór af velli á 81. mínútu. 

Voluntari er í áttunda sæti með 33 stig, en tvö efstu sætin í neðri hluta deildarinnar, sjöunda og áttunda sæti, gefa þátttökurétt í umspili um sæti í Sambandsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert