Lazio og Lecce skildu jöfn, 2:2, í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld.
Ciro Immobile kom Lazio yfir á 34. mínútu, en Rémi Oudin sneri taflinu Lecce í vil með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks og öðru í upphafi seinni hálfleiks.
Stefndi allt í óvæntan útisigur Lecce, en Sergej Milinkoivic-Savic jafnaði í uppbótartíma og jafntefli varð niðurstaðan. Þórir Jóhann Helgason kom inn á hjá Lecce á 82. mínútu.
Lazio er í þriðja sæti með 65 stig og Lecce í 16. sæti með 32 stig, þegar liðin eiga þrjá leiki eftir.