Frosione tryggði sér í dag efsta sæti ítölsku B-deildarinnar í fótbolta með 3:2-heimasigri á Genoa í toppslag. Bæði lið höfðu tryggt sér sæti í A-deildinni fyrir leikinn.
Albert Guðmundsson kom inn á sem varamaður hjá Genoa í stöðunni 2:1 og hann skoraði seinna mark Genoa, er hann minnkaði muninn í 3:2.
Frosione er í toppsætinu með 77 stig og Genoa í öðru sæti með 70. Bari kemur þar á eftir með 65, en tvö efstu liðin fara beint upp og þriðja til áttunda sæti fara í umspil. Aðeins ein umferð er eftir.