Dalvíkingurinn á skotskónum í Belgíu

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði mark Beerschot.
Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði mark Beerschot. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Beerschot mátti þola tap á heimavelli gegn Lierse í B-deild Belgíu í fótbolta í dag, 1:2. 

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði mark Beerschot er hann kom liðinu í 1:0 á 34. mínútu, en hann lék fyrstu 88 mínúturnar. 

Því miður fyrir Nökkva svaraði Lierse með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla skömmu eftir mark Nökkva og 1:2-tap varð raunin.

Beerschot er í þriðja sæti deildarinnar, langt á eftir tveimur efstu liðunum, og ljóst að Beerschot-liðið leikur í B-deildinni aftur á næsta tímabili.

Nökkvi hefur gert sjö mörk í 28 leikjum á tímabilinu, en hann hefur leikið 27 þeirra frá byrjun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert