Edin Džeko, Olivier Giroud og Karim Benzema fara enn mikinn í sparkheimum – komnir hátt á fertugsaldurinn. Og allir eiga þeir möguleika á að verða Evrópumeistarar með félögum sínum á enn einu afbragðstímabilinu upp við markið.
Þegar aldurinn færist yfir er ekki óalgengt að sparkendur færi sig aftar á völlinn. Hver man ekki eftir Shoot-viðtalinu fræga við Paul heitinn Mariner, „Poacher turned game keeper“, eða Gammur gerist gæsluliði? Þríeykið Edin Džeko, Olivier Giroud og Karim Benzema hefur greinilega ekki fengið það memó en allir eru þessir menn enn þá oddaflyglar í sínum liðum – í hárri sparkelli. Það sem meira er, öll eru þessi lið, Inter og AC frá Mílanó og Real frá Madríd, komin í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu sem manni er sagt að sé sterkasta mót í heimi.
Þrjú af fjórum liðum sem þar eru eftir eru sem sé með háaldraðan mann á toppnum. Stílbrotið er Manchester City, sem er með bráðungan mann í því hlutverki. Raunar eru áhöld um hvort sá ágæti maður sé yfirhöfuð maður. Trúir einhver því að hann sé kominn úr móðurskauti? Varð hann ekki bara til á einhverri tilraunastofu í Tromsö? Segið þið mér!
En það er elli en ekki Elli sem er hér til umfjöllunar, þannig að við skulum, eftir þennan útúrdúr, snúa okkur beint að gömlu mönnunum aftur. Allir hófu þeir leik í fyrri umferð undanúrslita Meistaradeildarinnar í vikunni en aðeins einum tókst þó að koma tuðrunni í netið, Džeko. Vel fer á því en Bosníumaðurinn er einmitt elstur þeirra þriggja, varð 37 ára í mars. „Krakkaskratti,“ segir nú Zlatan Ibrahimović á óðalssetri sínu í Mílanó, en látum orð hans ekki slá okkur út af laginu. Það er ekki heiglum hent að vera enn að skora á allra hæsta stigi hins göfuga leiks, 37 ára að aldri. Þetta var fjórða mark Džekos í 11 leikjum í keppninni í vetur og við það má bæta níu mörkum í seríu A. Það er ekki slæmt fyrir mann á þessu reki. Hitt mark Inter í leiknum skoraði Armeninn Henrikh Mkhitaryan sem orðinn er 34 ára. Samtals eru þeir félagar því 71 árs.
Giroud er fæddur sama ár og Džeko, 1986, en verður ekki 37 ára fyrr en í endaðan september. Hann komst ekki á blað í tapi AC fyrir Inter en er eigi að síður með fimm mörk í tíu Evrópuleikjum í vetur. Átta mörk í seríunni. Svo skrapp okkar maður til Katar fyrir jólin til að slá markamet franska landsliðsins, kominn með 53 kvikindi á þeim vettvangi. Fleiri en bæði Thierry Henry og Michel Platini. Já, við erum að tala um alvöru goðsagnir.
Það met myndi líklega tilheyra Benzema í dag hefði hann ekki lent í ógöngum utan vallar um árið og verið settur í skammarkrókinn hjá landsliðinu. Hann er kjúklingurinn í hópnum, ekki „nema“ 35 ára, verður 36 í lok ársins. Benzema hefur misst talsvert úr í vetur vegna meiðsla en er samt kominn með 29 mörk í 39 leikjum. Það er lygileg tölfræði fyrir mann sem fæddur er á því herrans ári 1987. Þar af eru 17 mörk í 21 leik í La Liga.
Kappinn átti sitt besta tímabil í fyrra, 44 mörk í öllum keppnum, og fjögur af fimm bestu hjá Real hafa komið eftir að hann varð þrítugur. Sem kunnugt er losnaði hressilega um Benzema eftir að Cristiano Ronaldo yfirgaf liðið árið 2018. Talandi um slitgóða framherja.
Nánar er fjallað um þetta slitgóða þríeyki í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.