Toppliðin röðuðu inn mörkum

Serge Gnabry skoraði tvö.
Serge Gnabry skoraði tvö. AFP/Christof Stache

Bayern München vann afar sannfærandi 6:0-heimasigur á Schalke í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Serge Gnabry skoraði tvö mörk fyrir Bæjara og þeir Thomas Müller, Joshua Kimmich, Mathys Tel og Noussair Mazraoui eitt mark hver.

Það var enn meiri markaveisla er Dortmund vann 5:2-heimasigur á Borussia Mönchengladbach.

Donyell Malen og Jude Bellingham voru báðir búnir að skora fyrir Dormtund þegar Sébastien Haller bætti við þriðja og fjórða markinu á 20. og 32. mínútu.

Ramy Bensebaini og Lars Stindl minnkuðu muninn í 4:2 á 75. og 85. mínútu, en Dortmund átti lokaorðið, því varamaðurinn Giovanni Reyna gerði fimmta markið í uppbótartíma.

Bayern München er í toppsætinu með 68 stig, einu stigi meira en Dortmund, þegar tvær umferðir eru eftir.

Sébastien Haller gerði einnig tvö mörk.
Sébastien Haller gerði einnig tvö mörk. AFP/Ina Fassbender
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert