Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Atromitos í Grikklandi, mun yfirgefa félagið en þessu greindi hann frá í þættinum Íþróttavikan á 433.is.
Viðar hefur verið í deilum við félagið vegna vangoldinna launa og mun yfirgefa félagið þegar samningur hans klárast 30. júní nk.
„Samningurinn klárast 30. júní, við vorum með svona 1+1 sem er í raun og veru árangurstengdur möguleiki. Það var svolítið óraunhæft og var í raun og veru aldrei að fara að gerast, sem ég er bara sáttur með núna. Ég er búinn að prófa þetta og leita annað núna." sagði Viðar í þættinum.
Viðar segir að það henti sér best að vera í góðu liði sem stjórnar leikjum og haldi boltanum vel. Þá telur hann sig enn eiga nokkur góð ár eftir í útlöndum.
„Það hentar mér langbest að vera í liði sem er að reyna að vinna deildina og heldur í boltann. Á móti stærri liðunum vorum við að pakka í vörn og beita skyndisóknum, við gerðum það þokkalega vel en fyrir mér hentar betur að vera nálægt boxinu og vera í færunum í liði sem stjórnar.
Maí er frekar dauður mánuður en við erum að vinna á fullu í þessu. Ég er með mínar hugmyndir um hvað ég vil og ég tel mig eiga nóg eftir. Þetta endaði kannski ekki alveg eins og ég vildi en miðað við þá leiki sem ég átti þá sannaði ég fyrir sjálfum mér að ég eigi fullt erindi í að vera áfram í góðri deild í útlöndum í nokkur ár í viðbót. Það er planið og við sjáum hvernig þetta þróast.“ sagði Viðar ennfremur.