Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic hefur lagt skóna á hilluna en framherjinn gaf það út eftir 3:1-sigur AC Milan á Verona í lokaumferð ítölsku A-deildarinnar í kvöld.
Zlatan, sem er 41 árs, lék aðeins fjóra leiki á tímabilinu vegna meiðsla. Hann hefur mikið glímt við meiðsli undanfarin tvö ár og hefur nú ákveðið að kalla það gott eftir afar farsælan feril.
Svíinn hefur spilað fyrir stórlið á borð við Ajax, Juventus, Inter Mílanó, Barcelona, AC Milan, París SG og Manchester United. Hann hefur skorað 339 deildarmörk á ferlinum og 62 mörk í 122 landsleikjum fyrir Svíþjóð.
Zlatan varð landsmeistari í Hollandi, Spáni, Ítalíu og Frakklandi og vann fjölmarga bikarmeistaratitla. Þá vann hann Evrópudeildina með Manchester United og heimsmeistaratitil félagsliða með Barcelona.