Albert og félagar unnu í Rómarborg

Albert Guðmundsson í landsleik með Íslandi.
Albert Guðmundsson í landsleik með Íslandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Albert Guðmundsson spilaði nánast allan leikinn í 1:0-sigri nýliða Genoa á stórliði Lazio á útivelli í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. 

Al­bert var á dög­un­um kærður fyr­ir kyn­ferðis­brot en hann kveðst saklaus. Leikur Albert ekki með ís­lenska landsliðinu á meðan málið stend­ur yfir. 

Hann var aftur á móti í byrjunarliði Genoa sem tók á móti Lazio í kvöld og lék nánast allan leikinn en hann var tekinn af velli í uppbótartíma síðari hálfleiks. Þetta var 200. deildaleikur Alberts á ferlinum.

Var þetta fyrsti sigur Genoa í deildinni á tímabilinu í öðrum leik liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert