Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn fyrsta leik sem atvinnumaður í fótbolta í meira en tvö ár er Lyngby og Vejle skildu jöfn, 1:1, á hemavelli Íslendingaliðsins í kvöld.
Síðasti leikur Gylfa fyrir leikinn í kvöld var með Everton gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni 23. maí árið 2021.
Gylfi kom inn á sem varmaðaur á 71. mínútu, er hann leysti Sævar Atla Magnússon af hólmi. Andri Lucas Guðjohnsen lék allan leikinn með Lyngby og hann skoraði mark liðsins á 58. mínútu er hann kom liðinu í 1:0.
Kolbeinn Birgir Finsson lék einnig allan leikinn fyrir Lyngby, sem Freyr Alexandersson þjálfar.
Liðið er í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 12 stig eftir níu leiki.