Hlín Eiríksdóttir, leikmaður Kristianstad og íslenska landsliðsins í fótbolta skoraði laglegt skallamark í dag er Kristianstad bar sigur úr býtum gegn Örebro 2:0. Hlín skoraði fyrsta mark leiksins á 68. mínútu með skallamarki eftir fyrirgjöf Tabby Tindell.
Hlín lék allan leikinn en seinna mark leiksins kom þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Með sigrinum fer Kristianstad upp í fimmta sæti sænsku 1. deildarinnar, 8 stigum á eftir toppliðið Hacken. Emelía Óskarsdóttir kom einnig við sögu í leiknum en hún kom inn á í stað Tabby þegar 8 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Kristianstad leikur undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur.