Hjartnæm kveðja Freys

Freyr kveður Lyngby.
Freyr kveður Lyngby. Ljósmynd/Skjáskot

Knattspyrnuþjálfarinn Freyr Alexandersson kvaddi danska knattspyrnufélagið Lyngby með fallegu myndbandi sem birtist á Instagram-síðu félagsins í dag.

Freyr skipti óvænt yfir til Kortrijk í Belgíu í dag, eftir afar góða tíma hjá Lyngby. Kom hann liðinu upp í efstu deild og hélt því uppi á ótrúlegan hátt.

„Ég hef átt mörg stórkostleg augnablik í Lyngby og ég hef verið gríðarlega heppinn að fá að vera hluti af þessu félagi. Það hefur mikla þýðingu fyrir mig og fjölskylduna mína.

Því miður er kominn tími til að kveðja. Það er erfitt að kveðja eftir allt sem við höfum gert saman. Mér er annt um alla hjá Lyngby,“ sagði Freyr m.a.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert