Alexandra í undanúrslitin

Alexandra Jóhannsdóttir fer í undanúrslitin með Fiorentina.
Alexandra Jóhannsdóttir fer í undanúrslitin með Fiorentina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alexandra Jóhannsdóttir og samherjar hennar í Fiorentina eru komnar í undanúrslit ítölsku bikarkeppninnar eftir dramatík í dag þar sem liðið sló Inter Mílanó út í vítaspyrnukeppni.

Fyrri leikur liðanna í Mílanó endaði 2:2. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma í dag en Alexandra kom inn á sem varamaður á 72. mínútu.

Michela Cambiaghi kom Inter yfir á þrettándu mínútu framlengingar en Pauline Hammarlund náði að jafna fyrir Fiorentina, 1:1, þegar níu mínútur voru eftir.

Þar með þurfti vítaspyrnukeppni og þar hafði Fiorentina 4:2, eftir fjórar umferðir. Alexandra var ekki meðal þeirra sem tóku vítaspyrnurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert