Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Dani Alves var í dag dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um kynferðisbrot.
Hæstiréttur Katalóníu dæmdi hann sekan um kynferðisbrot gegn konu á skemmtistað í Barcelona árið 2022. Er honum einnig gert að greiða konunni 150.000 evrur.
Brasilíumaðurinn var handtekinn í janúar árið 2023. Hann hefur verið í haldi síðan og var beiðni hans um tryggingu hafnað.
Alves má áfrýja dómnum.
Alves fullyrti að hann hafi hitt konuna sem hann er dæmdur fyrir að hafa brotið á á skemmtistað í Barcelona í lok árs 2022. Þau hafi farið saman á salerni á staðnum og stundað kynlíf, með samþykki beggja að hans sögn.
Saksóknari spurði Alves beint hvort hann hefði þvingað konuna til samræðis, líkt og hún bar vitni um á mánudag.
„Aldrei nokkurn tímann. Ég er ekki þannig manneskja. Ég er ekki ofbeldismaður,“ svaraði Alves fyrr í þessum mánuði.
Alves neitaði upphaflega að hafa hitt konuna sem kærði hann fyrir nauðgun til þess að reyna að vernda hjónaband sitt við eiginkonu sína, Joönu Sanz. Þau eru skilin að borði og sæng.
Brasilíumaðurinn breytti síðar framburði sínum á þann veg að hann hafi haft samræði við konuna á skemmtistaðnum með samþykki hennar.
Dani Alves lék yfir 400 leiki á sínum tíma með Barcelona. Þá vann hann deildina margoft og Meistaradeildina þrisvar. Lék hann einnig með Sevilla, Juventus og París SG.
Alves lék þá 123 landsleiki fyrir brasilíska landsliðið. Síðast lék hann með Pumas í Mexíkó.