Mál Alberts fellt niður

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðssaksóknari hefur fellt niður kynferðisbrotamál á hendur knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Alberts, staðfesti það í samtali við RÚV og ástæðan sé sú að málið hafi ekki þótt líklegt til sakfellingar.

Albert var kærður fyrir kynferðisbrot í fyrrasumar og hefur ekki spilað leik með ís­lenska karla­landsliðinu í knatt­spyrnu síðan.

https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2023/08/23/albert_kaerdur_fyrir_kynferdisbrot/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert