Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitum í deildarbikar kvenna í knattspyrnu í dag eftir 2:1 sigur á Keflavík.
Valur er með 12 stig á toppi riðilsins en með sigrinum jafnar Breiðablik stigafjöldann og bæði liðin fara áfram.
Saorla Lorraine Miller kom Keflavík 1:0 yfir á 66. mínútu eftir sendingu frá Anitu Lind Daníelsdóttir og vandræðagang í vörn Breiðabliks.
Agla María Albertsdóttir jafnaði metin fyrir Breiðablik af vítapunktinum stuttu síðar eftir að Andrea Rut Bjarnadóttir fiskaði víti.
Birta Georgsdóttir kom inn á í hálfleik og skoraði svo sigurmarkið á 85. mínútu