Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk í 8:1 sigri Kristianstad á Lidköping í riðlakeppninni í sænsku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu.
Kristianstad er í fyrsta sæti í riðlinum en aðeins ein umferð er búin.
Kristianstad skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins fjórar mínútur en Lidköping jafnaði metin stuttu síðar. Eftir það byrjuðu mörkin að raðast inn og staðan var 5:1 fyrir Kristianstad í hálfleik.
Hlín skoraði svo fyrsta mark Kristianstad þegar aðeins tær mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Tabby Tindell skoraði svo sjöunda mark liðsins og Hlín innsiglaði svo sigurinn með áttunda markinu. Katla Tryggvadóttir spilaði allan leikinn.