Kim Ki-Dong, knattspyrnustjóri FC Seoul, vandar Englendingnum Jesse Lingard ekki kveðjurnar.
Lingard hefur átt erfitt uppdráttar hjá liðinu eftir að hann samdi við það í byrjun árs.
„Ég hef íhugað það alvarlega að fjarlægja Jesse Lingard úr liðinu,“ sagði Kim á fréttamannafundi um helgina.
„Mér finnst sem leikmaður sem hleypur ekkert í nokkrar mínútur sé ekki knattspyrnumaður, ef hann berst ekki og hleypur ekki meira en leikmaður sem hleypur í 90 mínútur.
Ef þú ætlar einungis að spila knattspyrnu að nafninu til ætti maður þá ekki bara að semja við leikmenn sem hafa lagt skóna á hilluna?“ hélt stjórinn áfram.