Þjóðverjinn Julian Nagelsmann verður næstu árin við stjórnvölinn hjá þýska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
Skrifar hann undir samning til ársins 2026 en Evrópumótið fer fram þarlendis í sumar.
Nagelsmann hefur mikið verið orðaður við stærstu félög Evrópu, Liverpool, Barcelona og endurkomu í Bayern München en ljóst er að ekkert verður úr því í bili.