Jón Dagur Þorsteinsson átti glæsilega innkomu í 3:1 sigri Leuven gegn Standard Liege. Jóni var skipt inn á eftir 65 mínútur þegar staðan var 1:1.
Landsliðsmaðurinn lét strax til sín taka og lagði upp 2:1 mark Leuven fyrir Nachon Nsingi áður en hann skoraði sjálfur þriðja markið í uppbótartíma.
Leuven er fjórum stigum fyrir ofan Standard eftir leikinn en liðin leika í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu.