Nígeríski knattspyrnumaðurinn Victor Osimhen er að líkindum á leið í ensku úrvalsdeildina í sumar, frekar en til Real Madrid eða París SG.
Legið hefur fyrir í allan vetur að Osimhen muni yfirgefa Napoli að þessu tímabili loknu. „Við vissum strax í sumar að hann myndi fara til Real Madríd, París SG eða Englands,“ sagði forseti Napoli, Aurelio De Laurentiis, í janúar.
Ítalski knattspyrnublaðamaðurinn Gianluca di Marzio segir í dag að Osimshen vilji ekki fara til Parísar og hans markmið sé að fara til einhvers af sterkustu liðunum i ensku úrvalsdeildinni. Þar liggi fyrir að Arsenal, Chelsea og Manchester United séu áhugasöm um að fá hann í sínar raðir.
Osimhen er þriðji markahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar í vetur með 15 mörk fyrir Napoli, einu meira en Albert Guðmundsson hefur skorað fyrir Genoa. Í fyrra varð hann markakóngur deildarinnar með 26 mörk þegar Napoli varð ítalskur meistari.