Þjálfari Ágústs rekinn

Ágúst Eðvald Hlynsson fær nýjan þjálfara
Ágúst Eðvald Hlynsson fær nýjan þjálfara Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Ágúst Hlynsson og félagar í AB í dönsku 2. deildinni í fótbolta fá nýjan þjálfara. David Roufpanah var sagt upp sem þjálfara í gær eftir margra mánaða óánægju með aðferðir hans.

Roufpanah hefur lagt gríðarlega áherslu á líkamlega þjálfun liðsins og leikmenn hafa kvartað yfir því að þeir séu þreyttir í leikjum. Mikil hlaup og CrossFit æfingar hafa valdið óánægju meðal leikmanna.

AB situr í 6. sæti 2. deildar og á ekki möguleika á að fara upp um deild á þessu tímabili. Markmið félagsins var að fara upp á þessu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert