Færir Íslendingurinn sig um set á Ítalíu?

Hjörtur Hermannsson.
Hjörtur Hermannsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson gæti verið á förum frá ítalska B-deildarfélaginu í sumar. 

Ítalskir miðlar greina frá en Hjörtur hefur fengið fá tækifæri með Pisa á tímabilinu og aðeins komið við sögu í fimmtán leikjum í B-deildinni. 

Spezia, sem leikur einnig í ítölsku B-deildinni, er sagt hafa áhuga á landsliðsmanninum en liðið hafnaði í fimmtánda sæti deildarinnar. 

Hjörtur á 27 landsleiki að baki fyrir Íslands hönd og hefur hann verið mikilvægur hlekkur í undanförnum landsliðsverkefnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert