Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk FCK í tapi liðsins gegn AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Tapið í Árósum gerði út um titilvonir Kaupmannahafnarliðsins.
Fyrra markið skoraði Orri með góðum skalla en síðari markið var af dýrari gerðinni, þrumufleygur af tuttugu metra færi efst í markhornið.
Mörkin má sjá hér að neðan.
👤 Orri Óskarsson (f.2004) ⚽️⚽️
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) May 22, 2024
🇩🇰 FCK
🆚 AGF
🇮🇸 #Íslendingavaktin pic.twitter.com/yutqO8njrY