Olympiacos frá Grikklandi varð í kvöld Sambandsdeildarmeistari í knattspyrnu með því að sigra Fiorentina frá Ítalíu, 1:0, í úrslitaleik í Aþenu.
Allt stefndi í vítaspyrnukeppni því staðan var 0:0 fram á 116. mínútu en þegar fjórar mínútur voru eftir af leiktímanum skoraði Ayoub El Kaabi sigurmark Grikkjanna sem fögnuðu gríðarlega í leikslok enda nánast á heimavelli í Aþenu, nágrannaborg Piraeus, heimaborgar Olympiacos.
Myndbandadómarar leiksins voru hálfa fimmtu mínútu að úskurða að mark El Kaabi væri löglegt og dramatíkin því mikil í Aþenu.
Þetta er í fyrsta skipti sem grískt félagslið vinnur Evrópukeppni í fótbolta.
Þetta er hins vegar annað árið í röð sem Fiorentina tapar úrslitaleiknum í þessari keppni en liðið beið lægri hlut fyrir West Ham frá Englandi í úrslitaleiknum í fyrra. Alls hefur Fiorentina tapað fimm af sex úrslitaleikjum sínum í Evrópukeppni.