Hlín með tvennu og Katla lagði upp

Hlín Eiríksdóttir með treyju Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir með treyju Kristianstad Ljósmynd/kdff.nu

Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad sem lagði Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Katla Tryggvadóttir lagði upp fyrra mark Hlínar.

Heimakonur í Kristianstad voru fljótar upp úr rásblokkunum því Hlín skoraði strax á fjórðu mínútu og kom sínum konum í 2:0 á áttundu mínútu. Lokatölur urðu 3:1 en Hlín og Katla hafa leikið afar vel á tímabilinu. Guðný Árnadóttir var ekki í leikmannahópi Kristianstad í dag.

Kristianstad situr í fjórða sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Hammarby í þriðja sæti en Kristianstad á leik til góða.

Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir
Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir Ljósmynd/@KDFF1998
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert