Stór nöfn yfirgefa Barcelona

Joao Felix fagnar marki í búning Barcelona
Joao Felix fagnar marki í búning Barcelona AFP/ JORGE GUERRERO

Portúgalarnir Joao Cancelo og Joao Felix yfirgefa herbúðir spænska knattspyrnuliðið Barcelona í sumar þegar lánssamningar þeirra renna út. Bakvörðurinn Marcos Alonso er einnig á förum en hann er samningslaus.

Cancelo er á láni frá Manchester City og Felix frá Atletico Madrid en Barcelona tilkynnti um brottför þeirra í dag. Katalóníufélagið virðist þó hafa eytt tilkynningunni og Fabrizio Romano, félagskiptamógúll, segir ekki loku fyrir það skotið að leikmennirnir gangi aftur til liðs við Barca í sumar.

Marcos Alonso hinsvegar er á förum eftir að samningur hans rann út. Alonso er 34 ára gamall og lék áður fyrir Chelsea og Fiorentina en gekk til liðs við Börsunga árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert