Christian Pulisic var allt annað en sáttur með dómarateymið eftir leik Bandaríkjanna og Úrúgvæ í Ameríkubikarnum í fótbolta í nótt. Dómari leiksins neitaði að taka í hönd sóknarmannsins í leikslok.
Pulisic virtist hvetja dómaratríóið til að fagna með liði Úrúgvæja í leikslok en Bandaríkjamenn hafa lokið keppni eftir 1:0-tap næturinnar. Mathias Olivera skoraði eina mark leiksins.
Bandaríkjamenn hafa valdið vonbrigðum á mótinu og þurfa að sjá á eftir sæti í átta liða úrslitum til Panama sem fylgir Úrúgvæ upp úr riðlinum
Dómara leiksins, Kevin Ortega Pimentel frá Perú, var ekki skemmt og tók ekki í hönd Pulisic. Atvikið má sjá í myndböndunum hér að neðan.
Referee Kevin Ortega REFUSED to shake Christian Pulisic’s hand at full-time of the game where USMNT loss vs Uruguay in the Copa America
— KANG IS KANG® (@DJKAYKANG) July 2, 2024
pic.twitter.com/fnpiNWwrmV