Bandaríska fótboltaliðið St. Louis City hefur rekið Bradley Carnell þjálfara liðsins. Nökkvi Þórisson leikur með liðinu.
Nökkvi skoraði sárabótarmark í tapi St. Louis gegn Vancouver Whitecaps á dögunum í 4:3-tapi liðsins sem var síðasti naglinn í líkkistu Carnell. Vancouver sneri 2:0-forskoti St. Louis í 4:2 áður en Nökkvi lagaði stöðuna í uppbótartíma.
Carnell var á öðru tímabili sínu sem þjálfari liðsins en hann fékk nýjan samning hjá félaginu fyrir tímabilið.