Brasilíska Marta er í leikmannahópi Brasilíu í fótbolta á Ólympíuleikunum í sjötta og síðasta sinn en hún hefur þegar tilkynnt að þetta sé hennar síðasta ár með landsliðinu.
Marta var sú fyrsta til þess að skora á fimm Ólympíuleikum í röð í Tókýó 2020 og er markahæsti leikmaður Brasilíu frá upphafi. Hún er líka markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins með 17 mörk í 23 leikjum.
Hún hefur tvisvar sinnum unnið silfurverðlaun á Ólympíuleikunum, árið 2004 og 2008, en í bæði skiptin tapaði Brasilía gegn Bandaríkjunum.
Í karlaflokki keppa U-23 landsliðin en í kvennaflokki senda löndin þeirra sterkustu lið.