Dagný frumsýnir nýja treyju West Ham

Dagný í nýju treyju West Ham.
Dagný í nýju treyju West Ham. Ljósmynd/West Ham

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir, fyrirliði West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, var ein af þeim sem frumsýndi nýja treyju liðins.

Dagný hefur verið fyrirliði West Ham frá 2022 en missti af síðasta tímabili þar sem hún var ólétt. Hún skrifaði undir nýjan eins árs samning í lok maí og verður því í London næsta árið.

Hún kom til liðsins árið 2021 eftir stutt stopp á Íslandi þar sem hún spilaði með Selfossi í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert