Í nótt kláruðust síðustu leikir í riðlakeppninni í Ameríkubikar karla í fótbolta og næst eru átta liða úrslit. Vinícius Jr, lykilleikmaður Brasilíu fékk sitt annað gula spjald og verður í banni í næsta leik.
Brasilía og Kólumbía gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum í D-riðli í nótt. Kólumbía vann riðilinn og mætir Panama í átta liða úrslitum. Brasilía lenti í öðru sæti og mætir Úrúgvæ í átta liða en verða án Vinícius sem hefur byrjað alla þrjá leiki Brasilíu og skorað tvö mörk.
Kosta Ríka vann Paragvæ, 2:1, í hinum leik riðislins en bæði lið duttu úr keppni.
Átta liða úrslit í Ameríkubikarnum:
Argentína - Ekvador
Venesúela - Kanada
Úrúgvæ - Brasilía
Kólumbía - Panama