Belgíski knattspyrnumaðurinn Arthur Theate er á leiðinni til Al-Ittihad í Sádi-Arabíu frá franska félaginu Rennes.
Theate, sem 24 ára, er varnarmaður sem hefur leikið með Rennes í tvö ár en hann gekk til liðs við félagið frá Bologna á Ítalíu árið 2022.
Theate á að baki 18 landsleiki fyrir Belgíu en hann var í stóru hlutverki með landsliðinu sem tapaði fyrir Frökkum í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í fyrradag.
Al-Ittihad mun greiða Rennes 18 milljónir evra fyrir Belgann.